Rætur frá 1954

Martex heitir nú Þórarinn. Nýtt nafn og breytt útlit marka næsta áfanga í sögu fjölskyldufyrirtækisins. Með ræturnar í íslenskum fataiðnaði frá 1954 og trausta arfleifð að baki setjum við stefnuna á framtíðina. Nafnið er engin tilviljun. Ættfaðir okkar, Þórarinn, lagði grunninn með krafti, elju og metnaði. Með nafninu heiðrum við hann og höldum sögunni áfram með ferskum hugmyndum og sömu áherslu á gæði.


Þú finnur okkur á sama stað — stolt af upprunanum og spennt fyrir framhaldinu.

  • Fatnaður og merking

    Við hjá Þórarinn bjóðum heildarlausnir í merktum fatnaði og auglýsingavörum fyrir fyrirtæki og stofnanir. Við sérhæfum okkur í hönnun, framleiðslu og merkingum með áherslu á gæði, faglega ráðgjöf og lausnir sem styrkja ásýnd fyrirtækja.

  • Fyrir fagfólk

    Við veljum fatnað úr vönduðum efnum, þar sem ending, þægindi og góð snið eru í fyrirrúmi. Við bjóðum upp á mátun fyrir fyrirtæki og erum með saumastofu til að tryggja að fatnaðurinn mæti kröfum fagfólks í daglegu starfi.

  • Síðan 1954

    Í gegnum árin hefur fjölskyldan meðal annars verið eigandi 66°Norður og Geysir verslana á Íslandi, auk skyrtuverksmiðjunnar Vilkma í Litháen, sem er enn í eigu fjölskyldunnar. Fyrir okkur er Þórarinn meira en nafn – það er loforð um gæði og traust.

Teymið okkar

Kynntu þér fólkið á bak við Þórarinn. Reynslumikið teymi sem hjálpar þér að finna réttu lausnina.

Elmar Freyr Jensen

Framkvæmdastjóri og sölustjóri

Markús Örn Þórarinsson

Fjármálastjóri

Sunna Ösp Bjarkadóttir

Sölustjóri endursölu til fyrirtækja

Dagrún Íris Sigmundsdóttir

Hönnunarstjóri og sölufulltrúi

Íris Mist Magnúsdóttir

Markaðsstjóri og sölufulltrúi

Ásdís Guðnadóttir

Verkefnastjóri mátunar

Elizabeth Katrín Mason

Kjóla- og klæðskerameistari

Jolanta Walicka Markuszewska

Saumasérfræðingur

Joanna Podsiadlik

Deildarstjóri merkinga og grafískur hönnuður

Einar Björn Þórarinsson

Framleiðslustjóri merkinga

Maciej Burdelak

Merkingadeild

Arthita Uppapong

Merkingadeild

Sarida Luanwiset

Merkingadeild

Söludeild, mátunardeild og vöruafgreiðsla

Viltu fá tilboð í vörur fyrir þitt fyrirtæki?

Veldu vörur og gefðu okkur allar helstu upplýsingar. Við reynum að svara innan 24 klst á virkum dögum.