Merkingar í boði

Við bjóðum fjölbreyttar merkingar fyrir fatnað og auglýsingavörur þar sem vönduð vinnubrögð og faglegur frágangur eru í fyrirrúmi.

Silkiprentun

Silkiprentun er þaulreynd prentaðferð sem skilar skýru og endingargóðu prenti á fatnað. Prentlit er þrýst í gegnum fíngert net á ramma og yfir á efnið. Hver litur er prentaður sérstaklega með sérútbúnu prentmóti. Aðferðin hentar því vel fyrir merki, texta og myndefni í einum eða fáum litum. Hún er jafnframt hagkvæmur kostur fyrir stærri pantanir, þar sem undirbúningskostnaður dreifist á fleiri stykki.

DTF-prentun

Í DTF-prentun (Direct to film) er myndefnið fyrst prentað á sérstaka filmu og síðan flutt yfir á efnið með hita og þrýstingi. Aðferðin skilar skýrum smáatriðum og sterkum litum og hentar jafnt fyrir einföld merki sem flókið myndefni með mörgum litum og litbrigðum, þar á meðal ljósmyndir.

Bródering

Bródering er endingargóð merkingaraðferð þar sem merki, texti eða mynstur er saumað beint í efnið. Saumurinn gefur merkingunni áferð og dýpt og fatnaðinum vandað yfirbragð. Útbúið er saumaforrit sem stýrir bróderingarvélinni og valinn þráður í litum sem falla að hönnuninni og lit flíkinnar. Aðferðin hentar á fjölbreyttan fatnað, svo sem skyrtur, pólóboli, peysur, jakka og húfur. Þegar unnið er með þunn eða teygjanleg efni þarf að huga sérstaklega að stærð og þéttleika saumsins og velja viðeigandi undirlag til að tryggja vandaðan frágang.

Prentun á auglýsingavörur

Merktar auglýsingavörur auka sýnileika vörumerkja og færa viðskiptavinum, starfsfólki og samstarfsaðilum gjöf sem nýtist í daglegu lífi. Val á merkingaraðferð tekur mið af efni og lögun vörunnar og þeirri útkomu sem óskað er eftir. Algengar aðferðir eru lasermerking, DTF-prentun og silkiprentun. Auglýsingavörurnar okkar eru oftast merktar hjá samstarfsaðilum erlendis og koma fullmerktar til landsins.

Pressuð merki

Pressuð merki, einnig kölluð patchar, eru merki sem eru framleidd eftir hönnun og fest á fatnað og textílvörur með hita og þrýstingi. Hönnunin er prentuð eða mótuð í merkið áður en það er fest á vöruna með hitapressu. Merkin eru fáanleg í fjölbreyttum efnum, litum, stærðum og formum og geta haft slétta, upphleypta eða gúmmíkennda áferð. Þau gefa fatnaðinum vandað yfirbragð og henta vel fyrir vörumerki, texta og einföld tákn. Efnið sem merkið er fest á þarf að þola hita og þrýsting við ásetningu. Aðferðin hentar því síður fyrir mjög viðkvæm efni eða flíkur með sérstaka húðun. Ending merkisins fer meðal annars eftir gerð þess, efninu sem það er fest á og því hvernig varan er þvegin og meðhöndluð.

Prentun í hálsmál

Prentun í hálsmál, einnig kölluð „print-in-label“, kemur í stað hefðbundins saumaðs miða. Merkingin er prentuð innan á flíkina við hálsmálið og getur sýnt vörumerki ásamt upplýsingum um stærð, efnissamsetningu og þvottaleiðbeiningar. Aðferðin gefur flíkinni snyrtilegt og heildstætt yfirbragð og styrkir sýnileika vörumerkisins. Án saumaðs miða í hálsmálinu eru minni líkur á óþægindum vegna miða sem nuddast við húðina. Hjá Þórarinn notum við silkiprentun til að merkja hálsmál.

Viltu fá tilboð í vörur fyrir þitt fyrirtæki?

Veldu vörur og gefðu okkur allar helstu upplýsingar. Við reynum að svara innan 24 klst á virkum dögum.