
Heimilisfang
Hafðu samband og við finnum rétta lausn fyrir þig.
Við þjónustum fyrirtæki, félagasamtök og hópa.
Hvernig virkar ferlið
Finndu vörurnar sem henta þínum þörfum.
Bættu vörum við á tilboðslistann.
Fylltu inn allar helstu upplýsingar um vörurnar og merkingu og sendu inn tilboðsbeiðni. Sölumaður hefur samband í kjölfarið.
Veldu vörur og gefðu okkur allar helstu upplýsingar og við reynum að svara innan 24 klst á virkum dögum.

Sagan
Nýtt nafn og breytt útlit marka næsta áfanga í sögu fjölskyldufyrirtækisins. Með ræturnar í íslenskum fataiðnaði frá 1954 og með trausta arfleifð að baki setjum við stefnuna á framtíðina.
Nafnið er engin tilviljun. Ættfaðir okkar, Þórarinn, lagði grunninn með krafti, elju og metnaði. Með nafninu heiðrum við hann og höldum sögunni áfram með ferskum hugmyndum og sömu áherslu á gæði.
Samstarfsaðilar okkar
Við veljum samstarfsaðila af kostgæfni og vinnum með leiðandi aðilum í fataiðnaði og auglýsingavörum. Áhersla okkar er á vönduð vörumerki, áreiðanleg gæði og lausnir sem standast kröfur fyrirtækja og stofnana.
Sérsniðnar lausnir
Finnur þú ekki það sem þú leitar að í vöruúrvalinu okkar? Við getum sérframleitt flíkur að þínum þörfum.

Atvinnugreinar



Kíktu í heimsókn

Heimilisfang
Hafðu samband og við finnum rétta lausn fyrir þig.
Martex verður Þórarinn!
Martex becomes Þórarinn!
Nú hefst nýr kafli hjá okkur - Það er okkur sönn ánægja að kynna fyrir ykkur Þórarinn. Nafnið heiðrar ættföður okkar, Þórarinn Elmar Jensen, og fjölskyldusögu okkar í fataiðnaði sem nær aftur til ársins 1954.
Þú finnur okkur á sama stað - stolt af upprunanum og spennt fyrir framhaldinu.
Skoðaðu vöruúrvalið á nýju vefsíðunni okkar.